Fimm fluttir á bráðamóttöku

mbl.is/Hjörtur

Fimm voru fluttir með sjúkrabílum á bráðamóttöku Landspítalans eftir bílslys á Vesturlandsvegi við Kollafjörð á tíunda tímanum í gærkvöldi. Enginn þeirra slasaðist alvarlega og fengu þeir allir að fara heim að lokinni skoðun.

Að sögn lögreglu var mikil hálka á vettvangi og voru þrjár bifreiðar fluttar af slysstaðnum með dráttarbifreið.

Ökumaður sem kom akandi að slysstaðnum rúmum hálftíma eftir að slysið varð reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, að sögn lögreglu. Farþegi í bílnum var einnig með fíkniefni í fórum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert