Þrír hælisleitendur teknir við höfnina

Málið fór í venjubundinn feril að sögn lögreglu.
Málið fór í venjubundinn feril að sögn lögreglu.

Skömmu fyrir hádegi í dag var tilkynnt um þrjá menn inni á svæði sem tilheyra Faxaflóahöfnum. Að sögn lögreglu vaknaði grunur um að viðkomandi menn væru að reyna að lauma sér um borð í farskip.

Þegar mennirnir fundust kom í ljós að þeir eru hælisleitendur hér á Íslandi. Nöfn þeirra voru tekin niður og fór málið í venjubundinn feril samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert