Bíll fór út af í hálku við Þórsvöllinn á Hamarsvegi í Vestmanneyjum og klessti á ljósastaur laust fyrir miðnætti í gærkvöldi.
Fjögur ungmenni voru í bílnum og sluppu þau öll við alvarleg meiðsli.
Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var bíllinn óökufær eftir slysið, auk þess sem ljósastaurinn fór á hliðina.