Auki hlut karla í jafnréttisstarfi

Frá Velferðarráðuneytinu.
Frá Velferðarráðuneytinu. mbl.is/Golli

Sérstakan kafla um karla og jafnrétti er í fyrsta skipti að finna í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum sem Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi. Markmiðið er að auka hlut drengja og karla í öllu jafnréttisstarfi. Þetta er í sjötta sinn sem slík áætlun er lögð fram.

Framkvæmdaáætlunin í jafnréttismálum er til fjögurra ára en markmið hennar er að tilgreina þau verkefni sem brýnust eru talin á sviði kynjajafnréttis. Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum skal fela í sér verkefni sem ætlað er að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla í íslensku samfélagi.

Framkvæmdaáætlunin skiptist í sjö kafla og er þar kynnt 21 verkefni sem áætlað er að framkvæma á gildistíma hennar. Er þessu fyrirkomulagi ætlað að tryggja að áherslur og forgangsröðun stjórnvalda á sviði jafnréttismála birtist með skýrum hætti í framkvæmdaáætluninni, að því er segir í frétt á vef velferðarráðuneytisins.

Geri úttekt á jafnréttislögum

Í framkvæmdaáætluninni er fjallað um samþættingu jafnréttissjónarmiða við alla ákvörðunartöku og stefnumótun í stjórnkerfinu í samræmi við jafnréttislög og áherslu á kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð. Gerð er tillaga um úttekt á jafnréttislögum og stjórnsýslu jafnréttismála þar sem kannað verði hvort markmið núgildandi laga og stjórnsýslu jafnréttismála sé í samræmi við alþjóðlega þróun og breytingar í íslensku samfélagi.

Miðað er við að á gildistíma áætlunarinnar verði áfram unnið að framkvæmd og eftirfylgni þeirra verkefna sem tilgreind eru í aðgerðaáætlun um launajafnrétti kynja og árangur þeirra metinn. Lögð er áhersla á innleiðingu jafnlaunastaðalsins ÍST-85:2012 og að fram fari markvisst kynningarstarf á vottun jafnlaunakerfa samkvæmt reglugerð um vottun jafnlaunakerfa fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins.

Í framkvæmdaáætluninni er í fyrsta skipti sérstakur kafli um karla og jafnrétti. Markmiðiðið er að auka hlut drengja og karla í öllu jafnréttisstarfi og kanna hvernig öll stefnumótun á sviði jafnréttismála geti betur tekið mið af samfélagslegri stöðu karla.

Tilkynning á vef velferðarráðuneytisins um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert