Munur á fylgi Pírata og Sjálfstæðisflokks eykst áfram

mbl.is/Ómar

Píratar mælast áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins í nýrri þjóðmálakönnun sem Félagsvísindasvið Háskóla Íslands vann fyrir Morgunblaðið.

Fylgi þeirra mælist nú 28% en þar á eftir mælist Sjálfstæðisflokkur með 19,7%. Hann tapar 3 prósentustigum frá síðustu könnun sem birt var 14. júní sl.

Vinstri grænir mælast nú með 17,5% fylgi og bæta við sig 1,6 prósentustigum frá síðustu könnun. Þar á eftir kemur Viðreisn sem einnig bætir við sig og mælist nú með 9,7% en mældist með 9,1% áður. Framsóknarflokkurinn hefur 9,5% fylgi og lækkar um 1,6%. Þá mælist Samfylkingin með 9% og eykur því fylgi sitt um 1,4% og Björt framtíð mælist með 4,5% fylgi, að því er fram kemur í umfjöllun um könnunina í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert