Birnan var með mjólk í spenunum

Krufning á birnunni fór fram í gær.
Krufning á birnunni fór fram í gær. ljósmynd/Keldur

Ísbjörninn sem felldur var við Hvalnes á Skaga á laugardagskvöld var fullorðin birna. Hún var með mjólk í spenum svo ekki er langt síðan húnn eða húnar fylgdu henni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Keldum og Náttúrufræðistofnun um krufningu birnunnar. 

Sérfræðingar á Tilraunastofunni á Keldum, þau Karl Skírnisson dýrafræðingur og Ólöf Guðrún Sigurðardóttir dýralæknir, krufu ísbjörninn í gær með aðstoð Þorvalds Björnssonar hamskera.

Birnan var meðalstór, 207 cm og 204 kg, en mun feitari en þeir birnir sem hingað hafa synt undanfarin ár. Sérfræðingarnir áætla að um 30% líkamsþyngdarinnar hafi verið spik þannig að ljóst er að dýrið hefur nærst eðlilega undanfarna mánuði.

Nýleg smásár fundust á haus og bóg en óljóst er hvernig dýrið fékk þessar skeinur. Grafið hafði í bógsárinu þannig að það var að minnsta kosti nokkurra daga gamalt. Fjölmörg sýni voru tekin úr dýrinu sem rannsökuð verða næstu daga og mánuði, meðal annars sýni sem ætluð eru til mælingar á styrk þrávirkra klórkolefnissambanda, þungmálmum, styrk geislavirkra efna og mótefnum gegn veirum.

Margvísleg vefjasýni voru tekin til vefjameinafræðilegra rannsókna. Leitað verður sníkjudýra í meltingarvegi og uppruni fæðuleifa sem fundust í ristli greindur en maginn reyndist vera tómur. Leitað verður að tríkínum í sýnum úr tungu, þind og kjálkavöðva en um helmingur hvítabjarna í Austur-Grænlandsstofninum er með þetta sníkjudýr sem ekki þekkist á Íslandi og setur Ísland þar með í hóp örfárra landa þar sem tríkínur ógna ekki heilbrigði manna.

Fyrirhugað er að súta skinnið og bein og hauskúpa verða hreinsuð á Náttúrufræðistofnun þar sem beinagrindin verður varðveitt. Birnan verður aldursgreind með því að telja árhringi í tannrótum en athuganir á tönnum geta einnig gefið aðrar mikilvægar upplýsingar um lífsferil viðkomandi dýra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert