Rúmlega 16 gráða hiti mældist á Dalatanga aðfaranótt sunnudags sem er að sögn Veðurstofu Íslands óvenjulegt á þessum tíma árs.
Desembermánuður hefur reyndar verið hlýr það sem af er og þrátt fyrir að kólni örlítið í veðri í dag, sérstaklega á norðanverðu landinu, hlýnar aftur á morgun.
Spáð er 6 til 8 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu í dag og á morgun en meðalhiti í Reykjavík síðustu 30 ár í desember hefur verið -0,2 gráður. Þá er meðalhámark 2,2 gráður og meðallágmark -2,8 gráður.