40 flugvélar lenda á aðfangadag

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/ÞÖK

Von er á 40 flugvélum til lendingar á Keflavíkurflugvelli á aðfangadag. Þetta er 60% aukning frá því í fyrra þegar 25 flugvélar lentu á vellinum og ríflega þreföldun frá árinu 2014 þegar 13 vélar lentu á vellinum á aðfangadag.

Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að bjartsýnustu spár geri ráð fyrir 40% aukningu á komu erlendra ferðamanna hingað til lands í desembermánuði í ár. 71 þúsund ferðamenn komu til landsins í desember í fyrra og 54 þúsund í sama mánuði árið þar áður. Í ár gæti talan orðið 100 þúsund.

Skapti segir í samtali í ViðskiptaMogganum í dag, að mikil breyting hafi orðið á umgjörð og þjónustu fyrir erlenda ferðamenn sem sækja landið heim yfir hátíðirnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert