Tilkynnt var um tvær bílveltur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í morgun. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Sú fyrri var skammt austan við Pétursey og hin við bæinn Litla-Hof.
Að sögn lögreglu kviknaði einnig í dráttarvél í Landeyjunum í morgun en ekki er vitað um eldsupptök.