Óttast umhverfisslys í Andakílsá

Andakílsá. Leir stendur upp úr.
Andakílsá. Leir stendur upp úr. Ljósmynd/Dagný Sigurðardóttir

Eigendur veiðiréttar við Andakílsá í Borgarfirði óttast að Orka náttúrunnar hafi valdið stórkostlegu tjóni á laxveiðiánni og tala um umhverfisslys í því efni.

Þegar hleypt var úr miðlunarlóni Andakílsárvirkjunar kom svo mikill aur niður í ána að hann fyllti hylji og viðkvæm uppeldissvæði laxaseiða.

Standa leirhryggir upp úr ánni þar sem áður voru veiðistaðir, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í máli og myndum í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert