Þrír teknir fyrir fíkniefnaakstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá ökumenn í gærkvöldi og nótt sem grunaðir voru um að aka bíl undir áhrifum fíkniefna.

Fyrsti ökumaðurinn var stöðvaður um níuleytið í gærkvöldi og annar var stöðvaður hálftíma síðar. Sá þriðji var síðan stoppaður um eittleytið í nótt.  

Allir voru ökumennirnir látnir lausir að lokinni sýnatöku og var nóttin að öðru leyti tíðindalítil að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert