Eldur kom upp í seiðaeldisstöð Arctic Fish í botni Tálknafjarðar um klukkan 15 í dag. Eldurinn kviknaði í rafmagnsútbúnaði.
Slökkviliðin á Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal fóru á vettvang og þegar að var komið hafði eldur læst sig í vegg og loft inni í húsinu, sem er sambyggt.
Að sögn Davíðs Rúnars Gunnarsson, slökkviliðsstjóra, var það fyrir snarræði slökkviliðsmanna að það náðist að slökkva eldinn áður en hann komst í mörg plastker sem þar eru.
Starfsmenn sem voru að störfum í seiðaeldisstöðinni höfðu samband við slökkviliðið. Davíð segir að eldurinn hafi verið þónokkur og að sem betur fer hafi tekist að slökkva hann í tæka tíð.
Að sögn Sigurðar Péturssonar, framkvæmdastjóra Arctic Fish, kviknaði eldurinn út frá háþrýstidælu. „Það hefur orðið eitthvað skammhlaup í henni og byrjaði að leggja reyk þarna og það eru verklagsreglur hjá okkur að hringja strax í slökkviliðið,“ segir hann.
Hann segir tjónið lítilsháttar og einungis dælan sjálf hafi eyðilagst. „Þetta var alveg afmarkað, ekki nálægt okkar fiskum eða neitt,“ segir Sigurður.
Uppfært kl. 16:52 með upplýsingum frá Arctic Fish