Fimm sækja um Dómkirkjuna

Dómkirkjan í Reykjavík.
Dómkirkjan í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm umsóknir bárust um embætti prests í Dómkirkjuprestakalli í Reykjavík.

Umsækjendur eru: Bryndís Svavarsdóttir guðfræðingur, séra Elínborg Sturludóttir, séra Eva Björk Valdimarsdóttir, Jónína Ólafsdóttir guðfræðingur og séra Vigfús Bjarni Albertsson.

Umsóknarfrestur um embættið rann út 14. ágúst sl. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, skipar í embættið frá 1. október nk. til fimm ára. Umsóknir fara nú til umfjöllunar matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknir þeirra sem matsnefnd telur hæfasta. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu.

Séra Sveinn Valgeirsson gegndi embætti prests við Dómkirkjuna. Hann tók við embætti sóknarprests eftir að séra Hjálmar Jónsson sagði því lausu. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert