Kviknaði í vespu í hleðslu

mbl.is/Hjörtur

Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan 19:30 í kvöld um eld í bílskúr í Arnarsmára í Kópavogi. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að kviknað hafði í vespu sem verið hafði í hleiðslu í skúrnum. Enginn var í bílskúrnum þegar eldurinn kviknaði.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Vespan er ónýt og einhverjar skemmdir urðu vegna sóts í bílskúrnum en eldurinn náði hins vegar ekki að breiðast út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert