Byggt við mjólkurstöð

Á baklóð Snorrabrautar 54 eru gamlar geymslur sem hafa verið …
Á baklóð Snorrabrautar 54 eru gamlar geymslur sem hafa verið innréttaðar sem vinnusalir. Þær verða rifnar. Sunnan við húsið var áður bílastæði fyrir mjólkurstöðina. Sú lóð hefur lengi verið óbyggð. Nýbyggingar á þeirri lóð og á baklóðinni eru hér merktar með grænum lit. Teikning/+Arkitektar

Fjárfestar áforma nýbyggingar við hlið gömlu mjólkurstöðvarinnar á Snorrabraut 54. Hugmyndir eru um samtengda nýbyggingu vestan og sunnan við húsið. Munu nýbyggingar og gamla húsið mynda heild.

+Arkitektar hafa lagt fram umsókn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur vegna málsins. Umsóknin varðar breytingu á deiliskipulagi svonefnds Heilsuverndarreits. Í umsókninni fólst gerð nýbyggingar með verslun, þjónustu og hóteli. Munu íbúðir einnig koma til greina.

Samkvæmt fasteignaskrá var húsið byggt 1929. Hönnuður hússins var Einar Erlendsson húsameistari. Líkindi eru með byggingunni og Héraðsskólanum í Reykholti, sem teiknaður var af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins. Einar var aðstoðarmaður Guðjóns á þessum tíma og síðar húsameistari ríkisins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert