Enginn miðhafi var með allar tölur réttar þegar dregið var út í ottó í kvöld, en fyrsti vinningur hljóðaði upp á tæpar 15 milljónir króna.
Tveir voru hins vegar með fjórar tölur réttar auk hinnar svokölluðu bónustölu og fær hvor um sig rúmar 167 þúsund krónur á mann, að kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Annar miðanna var í áskrfit en hinn var seldur á N1, Naustagili á Húsavík.
Vinningstölurnar voru 16, 24, 32, 37, og 38. Bónustalan var 25.
Fjórir voru með fjórar réttar tölur í Jóker og fær hver um sig 100 þúsund krónur á mann. Einn miðanna var í áskrift en hinir voru seldir á N1 í Reykjanesbæ, Við Voginn og á Olís við Gullinbrú.
Jókertölurnar voru 3, 9, 5, 5 og 5.