Haldi betur utan um endurmenntun

mbl.is/Hjörtur

Ráðuneytin þurfa að halda betur utan um endurmenntun starfsfólks, inntak hennar, umfang og kostnað að mati Ríkisendurskoðunar. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar segir ennfremur að með bættri skráningu og aukinni yfirsýn á eðli og umfangi endurmenntunar sé betur hægt að leggja mat á það hvort henni sé sinnt á hagkvæman og skilvirkan hátt og með þeim árangri sem stefnt sé að.

„Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að sýna aukið frumkvæði að endurmenntun starfsfólks og hvetja til hennar með beinum hætti í samræmi við eigin mannauðs- og fræðslustefnu. Í könnun sem Ríkisendurskoðun lagði fyrir háskólamenntað starfsfólk Stjórnarráðs Íslands sagðist einungis um þriðjungur starfsfólks hafa fengið slíka hvatningu. Í um 80% tilvika komi frumkvæði að endurmenntun frá starfsfólkinu sjálfu. Í könnuninni kom einnig fram að um fjórðungur svarenda hafði aldrei farið í starfsmannasamtal. Ríkisendurskoðun hvetur því ráðuneytin til að leggja aukna áherslu á árleg starfsmannasamtöl sem mikilvægan þátt í mannauðsstjórnun þeirra.“

Þá segir að öll ráðuneytin telji sig starfa samkvæmt mannauðsstefnu Stjórnarráðsins samkvæmt könnuninni. Þar komi fram að hvatning, ástundun og áform starfsfólks mældust lægst í þeim þremur ráðuneytum sem hafa ekki mótað sérstaka stefnu á þessu sviði. „Ríkisendurskoðun hvetur utanríkisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti til að móta stefnu um endurmenntun og fræðslu og gera starfsþróunaráætlanir í samráði við starfsfólk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert