Ferðaþjónustufólk á Íslandi segir gengissveiflur og óvissu um gjaldtökur gera ferðaiðnaðinum erfitt fyrir.
Jón Heiðar Þorsteinsson hjá Iceland Travel segist þó finna heilmikinn áhuga ferðamanna á Íslandi, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
Sindri Ragnarsson hjá Glacier Trips telur enga lægð fram undan í aðsókn til landsins. Sævar Skaptason hjá Hey Iceland segir að árið í heild sé viðunandi hjá fyrirtækinu og Rannveig Snorradóttir hjá Obeo Travel segir norðurljósin heilla.