Tveir bílar sem voru að mætast skullu saman á Sólheimasandi austan við Jökulsá um klukkan 14 í dag. Tveir voru í hvorum bíl og virðast meiðsli vera minniháttar, að sögn Odds Árnasonar, yfirlögregluþjóns á Selfossi. Ekki liggur fyrir á hvaða sjúkrastofnun fólkið verður flutt, á Selfoss eða til Reykjavíkur.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en afturkölluð þegar fyrstu viðbragðsaðilar komu á staðinn.