Búið er að opna fyrir umferð á Reynisfjalli við Vík, en þar varð alvarlegt bílslys fyrr í dag þegar snjóruðningstæki og fólksbíll skullu saman. Tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús í Reykjavík eftir slysið. Veginum var lokað um tíma vegna þessa og mynduðust langar bílaraðir. Vegurinn hefur nú verið opnaður aftur.