Friðheimar fengu nýsköpunarverðlaun SAF

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verðlaunahafarnir Knútur Rafn Árman og …
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verðlaunahafarnir Knútur Rafn Árman og Helena Hermundardóttir og Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og formaður dómnefndar nýsköpunarverðlaunanna. Ljósmynd/Aðsend

Friðheimar í Bláskógabyggð eru handhafi nýsköpunarverðlauna Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Friðheimum verðlaunin við fjölmenna og hátíðlega athöfn á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 16. nóvember. 

Í umsögn dómnefndar segir að Helena Hermundardóttir og Knútur Rafn Ármann eigendur Friðheima séu miklir frumkvöðlar á sínu sviði en þau hafa tvinnað saman tómataræktun, ferðaþjónustu og hestamennsku og taka árlega við vel á annað hundrað þúsund ferðamönnum. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Starfsemi Friðheima er lýsandi dæmi um það hvernig ferðaþjónusta er í sívaxandi mæli að skapa ný tækifæri fyrir hefðbundnar atvinnugreinar um land allt og að greinin er besta tæki til jákvæðrar byggðaþróunar, sem fram hefur komið í íslensku þjóðlífi á undanförnum árum.“ Þetta segir ennfremur í umsögn dómnefndar. 

Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í fjórtánda sinn sem SAF veita nýsköpunarverðlaun samstakanna en þetta árið bárust 25 tilnefningar í samkeppninni um verðlaunin. 

Friðheimar í Bláskógabyggð.
Friðheimar í Bláskógabyggð. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert