Bílvelta varð á Hafnavegi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. Ökumaðurinn missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún fór nokkrar veltur utan vegar. Maðurinn slapp með lítil meiðsl en var fluttur með sjúkrabifreið undir læknishendur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Nokkur umferðaróhöpp til viðbótar voru skráð. Meðal annars var bifreið ekið inn í hlið hópferðabifreiðar þegar hinni síðarnefndu var ekið út frá biðstöð strætisvagna og inn á akrein.