Fundað aftur á mánudaginn

Fundi flugvirkja í kjaradeilu þeirra við Icelandair lauk í dag án niðurstöðu en stefnt er að því að funda aftur á mánudaginn klukkan eitt.

Frétt mbl.is: Flugvirkjar og Icelandair funda í dag

Þetta segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, í samtali við mbl.is. Hann segir aðspurður lítið nýtt hafa komið fram á fundinum heldur hafi hann snúist aðallega um það sama og rætt hafi verið um á fyrri fundum. 

Flugvirkjar sem starfa fyrir Icelandair samþykktu í kosningu að boða til verkfalls frá morgni 17. desember hafi ekki verið samið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert