Klæddi sig í 8 buxur og 10 boli

Lögreglan á Suðurnesjum handtók mann í Leifsstöð em lét öllum …
Lögreglan á Suðurnesjum handtók mann í Leifsstöð em lét öllum illum látum vegna töskugjalds sem honum var gert að greiða. mbl.is/Hjörtur

Ferðamaður, sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni, greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til þess að sleppa við gjaldið.

Honum var vísað frá flugi og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig svo dúðaður. Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert