Fyrsti vinningur í EuroJackpot gekk ekki út í kvöld en fjórir miðahafar hrepptu annan vinning. Hljóta þeir hver um sig tæpar 60 milljónir króna í sinn hlut, en fjórir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn á Spáni.
Þrír voru með þriðja vinning og hlýtur hver rúmar 35 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Tékklandi og Þýskalandi.
Þrír miðahafar voru með annan vinning í Jóker og hljóta þeir hver um sig 100 þúsund krónur.