Leiksýningin Himnaríki og helvíti fellur niður á morgun, sunnudaginn 21. janúar, vegna veikinda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.
Miðasalan mun hafa samband við þá sem eiga miða á sýninguna. Þeir sem vilja frekari upplýsingar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við miðasölu Borgarleikhússins í síma 568 8000.