Vatnið öruggt þrátt fyrir há gildi heildargerlafjölda

mbl.is/Heiddi

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar frá Veitum ohf. um að niðurstöður rannsókna á hluta vatnssýna, sem fyrirtækið tók í borholum þess föstudaginn 2. febrúar sl., sýni of há gildi heildargerlafjölda við 22°C.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar er athygli vakin á því að ekki sé um að ræða niðurstöður úr opinberu eftirliti heilbrigðiseftirlitsins með neysluvatni úr dreifikerfi Reykvíkinga.

Sýnatakan sé vegna innra eftirlits vatnsveitunnar með vatni í borholum á vatnsverndarsvæðinu í Heiðmörk og hluti af vöktun þess þegar hætta sé á asahláku og miklum rigningum.

„Það er niðurstaða Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Matvælastofnunar og sóttvarnalæknis að þrátt fyrir þetta sé neysluvatnið öruggt og almenningur þurfi ekki að grípa til neinna sérstakra aðgerða vegna þess. Um er að ræða sérstakar veðuraðstæður sem hafa leitt til þess að vatnið í hluta af borholunum hefur ekki staðist ýtrustu gæðakröfur. Heilbrigðiseftirlitið tók í dag sýni á nokkrum stöðum úr dreifikerfinu til að kanna gæði neysluvatnsins þar og mun áfram fylgjast með gæðum þess,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert