Sá stærsti sem hefur mælst í Öræfajökli

Horft yfir öskju Öræfajökuls og niður í Hornafjörð.
Horft yfir öskju Öræfajökuls og niður í Hornafjörð. mbl.is/RAX

Um 10 eftirskjálftar fylgdu í kjölfar jarðskjálfta sem varð kl. 05:07 í morgun í Öræfajökli, en skjálftinn mældist 3,6 að stærð. Jarðskjálftinn fannst á Hofi í Öræfasveit en flestir í Öræfasveit sváfu meðan hann reið yfir.

„Jarðskjálftinn er sá stærsti sem mælst hefur í Öræfajökli, en fyrsti jarðskjálftamælirinn var settur upp við Kvísker árið 1976.  Skjálftinn mældist í öskjunni, um 1 km suðaustur af miðju ísketilsins sem myndaðist í upphafi nóvembermánaðar á síðasta ári. Nokkur óvissa er í dýptarákvörðun skjálftans, en hann virðist vera á um 2-4 km dýpi,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Þar segir ennfremur, að Öræfajökull hafi sýnt merki um aukna virkni í rúmt ár. Sér í lagi hafi virknin aukist sl. haust. „Tveir aðrir jarðskjálftar stærri en 3 hafa mælst síðan þá (M3,5 þann 3. október 2017 og M3,1 þann 18. janúar 2018).“

Þá segir í tilikynningunni, að engar markverðar breytingar hafi sést undanfarnar vikur í öðrum vöktunargögnum þ.m.t. aflögunargögnum, vatnamælingum og gasmælingum.

„Yfirlitsflug, til að mæla yfirborðsbreytingar á jöklinum, verður við fyrsta tækifæri. Mikilvægt er að fylgjast áfram með aflögun á jökulyfirborði þar sem hún getur endurspeglað breytingar í jarðhitakerfinu. Auk þess eru gervitunglamyndir notaðar við eftirlit á aflögun jökulsins, en engar merkjanlegar breytingar hafa sést þetta árið (síðasta gervatunglamyndin er frá lokum janúar).

Viðvörunarlitur fyrir flug er áfram gulur fyrir Öræfajökul. Veðurstofan vaktar allan sólahringinn og bregst við, mælist merkjanlegar breytingar á virkni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert