Forsetinn sendi samúðarkveðjur

Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. mbl.is/Eggert

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi í dag dönsku konungsfjölskyldunni samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna fráfalls Hinriks prins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Í kveðju sinni minntist forseti góðra kynna þeirra forsetahjóna af Hinrik í opinberri heimsókn til Danmerkur í byrjun síðasta árs.

Hann hafi verið áhugasamur, elskulegur og lifandi í viðkynningu, góður gestgjafi sem þekkti vel sögu þjóðanna og menningu og sýndi málefnum Íslands ríkan áhuga. Með Hinrik prins sé genginn mætur maður sem rækt hafi skyldur sínar í þágu dönsku þjóðarinnar af metnaði og alúð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert