Vegna veðurs og slæmrar veðurspár í dag hefur verið ákveðið að loka veginum um Súðavíkurhlíð að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum. Að sögn Vegagerðarinnar hefur hættustigi vegna snjóflóða verið lýst yfir.
Lögreglan bendir vegfarendum á að fylgjast með vef Vegagerðarinnar eða hafa samband í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777.
Lögreglan mun einnig birta nýjustu tíðindi á Facebook-síðu embættisins þegar þær liggja fyrir.