Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að Davíð Fannari Thorlacius, 19 ára.
Hann er klæddur í svarta hettupeysu (sömu og hann er í á myndinni) og svartar joggingbuxur, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Davíð Fannar er 176 cm á hæð og 130 kg, dökkhærður með skegghýjung.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eftir kl. 13:00 í dag eru beðnir að láta lögreglu vita í síma 444-2805.