Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaka rán í undirgöngum við Logafold í gærkvöldi en þar réðust tveir menn á stúlku og rændu af henni skartgrip, peningum og fleiri hlutum. Atvikið átti sér stað upp úr klukkan 23 samkvæmt dagbók lögreglunnar.
Maður í annarlegu ástandi var handtekinn við Hlemm grunaður um vörslu fíkniefna upp úr miðnætti. Maðurinn er vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Lögreglan stöðvaði för ökumanns sem er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna við Skógarsel um níuleytið í gærkvöldi.