Viðbragðsaðilar á Suðurlandi ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar voru kallaðir til vegna bílveltu skammt vestan við Lómagnúp.
Tveir voru í bílnum og eru þeir báðir með meðvitund en annar er nokkuð slasaður á höfði, að því er kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.
Lögregla er komin á vettvang og sjúkrabílar eru á leiðinni. Ekki verður þörf fyrir lokanir á vegum vegna þessa.