Vinna hafin við breytingar á barnalögum

Dómsmálaráðuneytið.
Dómsmálaráðuneytið. mbl.is/Þórður Arnar

Dómsmálaráðuneytið hefur hafið vinnu við breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem eru tvíþættar.

Annars vegar er um að ræða breytingar varðandi skipta búsetu barns og tengjast skýrslu starfshóps frá 2015, að því er kemur fram í tilkynningu.

Hópnum var falið að kanna með hvaða leiðum mætti jafna stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barna sinna með tilliti til réttinda, skyldna og skráningar sem fylgir lögheimili barns.

Hins vegar er um að ræða breytingar á ákvæðum barnalaga um framfærslu barns og meðlag.

Áform um lagasetningu hafa verið sett inn á samráðsgátt stjórnarráðsins, en unnt er að senda inn umsagnir til 6. apríl næstkomandi. Umsagnir verða birtar að þeim fresti liðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert