Lögreglan leitar að manni og ökutæki

Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112.
Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar karlmanns og ökutækis í tengslum við rannsókn hennar á innbroti í verslun í Skútuvogi í Reykjavík í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu kl. 5.41.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar lögreglu barst tilkynning um málið var þjófurinn á bak og burt, en sá hafði ekið rauðum Chevrolet Spark, með skráningarnúmerið HNM06, inn um aðalinngang verslunarinnar, stolið þar einhverju af verkfærum og síðan farið aftur akandi af vettvangi. 

Lögreglan leitar ökumannsins, en hann má sjá á meðfylgjandi myndum, og sömuleiðis ökutækisins, en því hafði áður verið stolið í Grænuhlíð í Reykjavík. Ökumaðurinn, sem er 170-175 sm á hæð, var klæddur í svarta peysu/jakka með hvítum röndum, gráar buxur, svarta skó og með lambhúshettu. Bíllinn er að líkindum dældaður og rispaður eftir innbrotið.

Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinn.thor@lrh.is eða einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Bíllinn er að öllum líkindum dældaður og rispaður eftir innbrotið.
Bíllinn er að öllum líkindum dældaður og rispaður eftir innbrotið. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert