Hinrik Lárusson sem starfar á Grillinu á Hótel Sögu vann silfurverðlaun í Nordic Junior Chefs-keppninni sem fór fram í Herning í Danmörku í dag. Svíþjóð lenti í fyrsta sæti í sömu keppni og Finnland í því þriðja.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Hafsteinn Ólafsson sem er kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppti í Nordic Chef. Í framreiðslu var það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppti fyrir Íslands hönd. Hvorugur þeirra náði á pall í sínum keppnum.
Klúbbur matreiðslumeistara sendi þessa þrjá keppendur til leiks. Klúbburinn rekur afreksstarf í matreiðslu og framreiðslu, keppnisstarf ungra matreiðslumanna í kokkalandsliðinu og keppnina kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjóðlegum keppnum eins og hér um ræðir.
Skipulag keppninnar var í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fór keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo.