Ummerki um átök á vettvangi

Sérfræðingar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru nú að ljúka störfum á vettvangi á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu en þar fannst maður á sjötugsaldri látinn í íbúðarhúsi.

Lög­regl­unni á Suður­landi barst á ní­unda tím­an­um í morg­un til­kynn­ing um að maður væri lát­inn í heima­húsi í Árnes­sýslu.

Í tilkynningu frá heimasíðu lögreglunnar segir að tilkynnandinn, sem jafnframt er ábúandi á bænum, ásamt öðrum manni sem einnig var staddur á vettvangi, séu í haldi og bíði skýrslutöku hjá lögreglu. Mennirnir þrír eru bræður og voru tveir þeirra gestkomandi hjá þeim þriðja.

Ummerki eru um að átök hafi átt sér stað á vettvangi. Dánarorsök mannsins liggur ekki fyrir en réttarkrufning verður framkvæmd strax eftir helgi til að leiða hana í ljós. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verið fram á gæsluvarðhald í málinu.

Oddur Árnason, yf­ir­lög­regluþjónn á Suður­landi, segir að bræðurnir tveir hafi ekki komið áður við sögu hjá lögreglu. Síðar í dag verði tekin ákvörðun um hvort að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert