Akstursbann við Dettifoss

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Greiðfært er í öllum landshlutum á þeim vegum sem á annað borð eru opnir á þessum árstíma en sumarvegir eru flestir ófærir og þar er sums staðar akstursbann vegna hættu á skemmdum. Eins er akstursbann á Dettifossvegi vegna vatnselgs og aurbleytu við fossinn.

Þoka er á nokkrum fjallvegum á Vesturlandi, Norðurlandi og Austfjörðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert