Gísli Kristinn Lórenzson hjá Þór á Akureyri, rekur ekki minni til að húsnæði íþróttafélagsins hafi orðið fyrir sambærilegum skemmdum áður, en tveir átta ára drengir voru teknir af lögreglunni á Norðurlandi eystra á sjöunda tímanum í gær fyrir rúðubrot í vallarhúsinu á íþróttasvæði Þórs.
Málið er viðkvæmt þar sem um börn er að ræða. „Við erum að reyna að ná utan um þetta,“ segir Gísli. Íþróttahúsið er í eigu bæjarins og eru starfsmenn Akureyrarbæjar komnir í málið. „Þetta eru sautján rúður sem voru brotnar þannig að þetta er töluvert tjón.“
Gísli segir glugga íþróttahússins hafa verið birgða í gærkvöldi og í dag hefjist vinna við að þrífa glerbrot sem lentu á á hlaupabrautinni, auk þess sem kanna verði vel að glerbrot leynist hvergi annars staðar. „Þeir eru að því starfsmennirnir að skoða svæðið til að tryggja að gler leynist hvergi á íþróttasvæðinu,“ segir hann
Að sögn lögreglu er málið upplýst en vegna ungs aldur drengjanna er málið komið til kasta Barnaverndar Akureyrar.