Laun félagsmanna VR hækka um 6,1%

Vinnuviku félagsmanna VR hefur aldrei verið styttri.
Vinnuviku félagsmanna VR hefur aldrei verið styttri. mbl.is/​Hari

Heildarlaun félagsmanna VR hækkuðu um 6,1% á milli ára, frá janúar 2017 til janúar 2018, samkvæmt launakönnun VR fyrir árið 2018. Grunnlaun hækkuðu um 5,9%.

Heildarlaun félagsmanna VR voru um 668 þúsund krónur á mánuði að meðaltali í janúar á þessu ári en í janúar árið 2017 voru þau um 630 þúsund. Grunnlaun voru um 622 þúsund krónur núna í janúar en voru 588 þúsund í janúar 2017. Launavísitala VR, sem mælir breytingar á launum félagsmanna yfir lágmarkslaunum, hækkaði um 6,25% á sama tímabili en kjarasamningsbundnar launahækkanir voru 4,5%.

Munur á heildarlaunum karla og kvenna er nú 13,4% en kynbundinn munur, þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta á laun, er 10% samanborið við 11,3% í fyrra. Breyting milli ára er ekki marktæk og þarf að fara aftur til ársins 2001 til að sjá marktæka breytingu. 

Þá sýna niðurstöður launakönnunarinnar að vinnutími félagsmanna hefur styst. Í janúar á þessu ári voru vinnustundir að meðaltali 42,9 í hverri viku samanborið við 43,2 stundir á síðasta ári. Í tilkynningu frá VR segir að þetta sé í fyrsta skipti sem vinnuvikan er styttri en 43 stundir í launakönnun félagsins. Lengst var hún 45 stundir að meðaltali á árunum fyrir hrun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert