Nýtt leyfi til kalkþörungavinnslu

Kalkþörungavinnslan við Bíldudal.
Kalkþörungavinnslan við Bíldudal. Kristinn Ingvarsson

Umhverfisstofnun hefur veitt Íslenska kalkþörungafélaginu nýtt starfsleyfi sem gildir til ársins 2034. Með leyfinu verður félaginu gert kleift að auka framleiðslu sína um 35 þúsund tonn, úr 50 þúsund tonnum í 85 þúsund tonn.

Kalkþörungafélagið kynnti áform sín um framleiðsluaukningu kalks á Bíldudal í júní árið 2016 og óskaði umsagna frá hagsmunaaðilum. Meðal þeirra eru Ísafjarðarbær, Vesturbyggð, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða, Orkustofnun og Umhverfisstofnun. Skipulagsstofnun mat það sem svo að fyrirhuguð framleiðsluaukning hefði ólíklega í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og yrði því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Fyrirtækið lét einnig útbúa nýtt hljóðstigskort fyrir áhrifasvæði verksmiðjunnar og endurskoðaði mengunarmælingar og vöktunaráætlun í samstarfi við viðeigandi stofnanir. Í starfsleyfi Umhverfisstofnunar segir að leyfið taki ekki efnislegum breytingum utan orðalagsbreytingar um mengunarmælingar sem hafi verið endurskoðaðar til að bæta gæði þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert