Húsið alelda er slökkvilið kom á staðinn

mbl.is/Eggert

Engan sakaði þegar eldur kom upp í íbúðarhús að Skálateigi 2 í Norðfjarðarsveit á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru heima þegar eldurinn kom upp, þar af eitt barn, og tókst þeim að komast af sjálfsdáðum út úr húsinu sem var alelda er slökkvilið kom á staðinn.

Þorbergur Hauksson aðstoðarslökkviliðsstjóri segir í samtali við mbl.is eldurinn hafi kviknað í feiti og húsið sé illa farið eftir brunann, en að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka