Kona á miðjum aldri lést í slysinu á Suðurlandsvegi í dag. Hún var ein í bílnum. Erlendur ferðamennirnir í hinum bílnum voru þrír og eru þeir einnig á miðjum aldri.
Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Fólksbílarnir tveir eru gjörónýtir eftir slysið en að sögn Sveins voru allir í beltum.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar tildrög slyssins, ásamt tæknideild lögreglunnar. Bílarnir verða einnig sendir í bíltæknirannsóknir.
Bílarnir rákust saman á tvíbreiðri brú yfir Síkinu, vestan við afleggjarann að Landeyjahafnarvegi.