Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti fyrir skömmu við Landspítalann í Fossvogi með veikan sjómann.
Áhafnarmeðlimir íslensks fiskiskips sem er statt á veiðum suður af landinu óskuðu eftir aðstoð þyrlunnar rétt eftir klukkan tvö þar sem talið var að veikindi mannsins væru alvarleg. Ekki er unnt að greina frá líðan mannsins að svo stöddu.