Styrkþegar f.v.: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Eygló Höskuldsdóttir Viborg, Ellen Geirsdóttir, Arnór Gunnar Gunnarsson, Eva H. Baldursdóttir, Lára Jóhannsdóttir og Kristján Theodór Sigurðsson.
Ljósmynd/Fulbright stofnunin á Íslandi
Fulbright-stofnunin á Íslandi veitti í dag árlega námsstyrki til íslenskra og bandarískra náms- og fræðimanna. Móttaka til heiðurs styrkþegunum var haldin af þessu tilefni í bandaríska sendiráðinu.
Íslenskir styrkþegar þetta árið eru:
- Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, til rannsóknarstarfa á sviði lýðheilsufræði við Columbia-háskóla.
- Dr. Lára Jóhannsdóttir, til Norðurskautsrannsókna á vegum Fulbright Arctic Initiative.
- Arnór Gunnar Gunnarsson, til mastersnáms í sagnfræði við Columbia-háskóla.
- Eva H. Baldursdóttir, til mastersnáms í alþjóðalögum, en hún hlýtur jafnframt Cobb Family Fellowship styrk til náms við Miami-háskóla.
- Eygló Höskuldsdóttir Viborg, til mastersnáms í tónsmíðum við New York-háskóla.
- Kristján Theodór Sigurðsson, til mastersnáms vélaverkfræði við Kaliforníuháskóla, Berkeley.
- Ellen Geirsdóttir Håkansson, til þátttöku í sumarnámsstefnu á sviði félagslegrar frumkvöðlastarfsemi við Tennessee-háskóla.