Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, verður gestur Páls Magnússonar í þættinum Þingvellir á útvarpsstöðinni K100 í fyrramálið klukkan 10. Páll segir í samtali við mbl.is að líklega megi búast við nýjum upplýsingum um aðdraganda bankahrunsins 2008.
Samkvæmt Páli verður einnig kjörið að spyrja þennan fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins um ástæður þess að fylgi flokksins hafi dalað nokkuð frá því að Davíð varð borgarstjóri og ekki síst ræða stöðuna í landsmálum.
Páll býst við áhugaverðum umræðum og segir Davíð með skemmtilegri viðmælendum um stjórnmál á Íslandi.