Leit hefst að nýju í og við Ölfusá upp úr klukkan 9 samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Um eitt hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leit að manni sem talinn er hafa stokkið út í Ölfusá laust eftir klukkan þrjú aðfararnótt sunnudags.
Leitað hefur verið á bátum á ánni og gönguhópar hafa gengið meðfram bökkum hennar án árangurs. Mjög erfið skilyrði voru til leitar í gær vegna veðurs, mikið vatn í ánni og litað. Spáin fyrir daginn í dag er aftur á móti mun betri.