Tvær bifreiðar lentu saman á Suðurlandsvegi við Steina um klukkan sex í dag. Sex voru í bifreiðunum sem lentu utan vegar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.
Leit málið illa út í byrjun og var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar en hún síðan afþökkuð eftir að hún var komin í loftið.
Meiðsl fólksins eru ekki talin alvarlega. Ekki þurfti að loka veginum þar sem bifreiðarnar lentu utan hans.