Hópbifreið og kennslubifreið rákust saman á Hringbraut til móts við BSÍ laust fyrir klukkan tíu í morgun.
Að sögn lögreglunnar er ekki vitað hvort meiðsli hafi orðið á fólki.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var ekki kallað á slysstaðinn.
Lögreglan er á vettvangi.