Einn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við eignaspjöll á bifreið í Garðabæ og hugsanlega líkamsárás þar í bæ. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Um miðnætti var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar var stöðvaður um svipað leyti grunaður um ölvunarakstur. Þeir voru báðir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.